Við og við
sem alltaf erum
allstaðar að nálgast þig
...
Tungl á lofti er
einsog lítið ljósaker
- vetur er komin
...
Dagurinn líður
í dansandi skugga
geimurinn víður
virðist frá glugga
...
Dagurinn er runnin
í nökkva skil
burtu í tímans rás
...
Dagur sem kemur og fer
langur og þráður
söngvar sem syngja
í versum og vísum
...
Dagurinn hverfur sem elding
í kyrra nótt sem er,
allt hefur sinn draum og tíma.
...
Upp nú upp nú ljós
aftur er dagur rís
útundan logum ós
litina ykkar til nýs
...
Dagurinn rís
ó vetrardís
þínum garði í
...
Nú er komið að kveldi
og kaldir straumar líða
í aftan sólskins eldi
allir draumarnir nú bíða
...
Ó dagrenning
í táraskýjum
hve hljóð
er þín dögg
...