NORÐUR Poem by Gerður Kristný

NORÐUR

Hægt eins og búrhveli
líðum við gegnum sortann
sem er hvítur
hér á heiðinni

Hann er fastheldinn á sitt
og gefur aðeins eftir
eina stiku í einu

Örskamma stund leiftra þær
í vegarkantinum
eins og eldspýtur
litlu stúlkunnar í ævintýrinu
og lýsa okkur
þar til við komum aftur
upp í vök
að blása

COMMENTS OF THE POEM
READ THIS POEM IN OTHER LANGUAGES
Close
Error Success