Hér hjarta mitt grær
í garði dagdraums nætur
- vetur er kominn
Ljóð er einsog blóm
með rætur í gróðri dags
- blöð gömul og ný
Allt er líkt hafi
í óróa öldufaldsins
- ein báran er stök
This poem has not been translated into any other language yet.
I would like to translate this poem