Eitt nýlegt laufblað,
á nakinni greininni
- en fleiri síðar
***
Einmana stjörnur,
líkar okkur sem erum
alein, alla tíð
***
Ég bíð eftir þér,
söngfugl minn, frá í fyrra
- en þú gleymdir mér
***
Dropahljóð vatnsins,
smátt og smátt hægist, meira
þar til það þagnar
***
Einsemd er hulin
í sprettu nýja vorsins
- en blikna þó blöðin
This poem has not been translated into any other language yet.
I would like to translate this poem