Vor Hækur (Spring Haiku) Poem by Peter S. Quinn

Vor Hækur (Spring Haiku)



Gulgrænt vorgrasið
aftur, einu sinni enn
grænkast allt túnið.

***

Í dag er vorið
aftur, í ilmi trjánna
við göngustíga.

***

Inn um glugga minn
gægjast blómleg pottablóm
í vorskrúðanum.

***

Blómin í litum
vorsins, á móti sólu
í stofu minni.

***

Nýspretta hafin,
allt fram streymir endalaust
- líka öll blómin.

COMMENTS OF THE POEM
READ THIS POEM IN OTHER LANGUAGES
Close
Error Success