það er sálar ró
hér inni
því hingað koma sjúkir
til að læknast
hugurinn fyllist
djörfung og áræðni
hér skal það takast
að sigrast á þraut
ekkert er ofurefli
brautin er greið
og hjartað ólmast
og hamast
því vonirnar
kviknuðu aftur
sem blómstur
í jarðvegi þrautarinnar
brátt munu þær linnast
og svara ákallinu
og svara
einsog sæði vorsins
~*~
Because of very many requests, I’ll put up here about 200 poems in Icelandic – not translated at this time, sorry...
This poem has not been translated into any other language yet.
I would like to translate this poem