Þar ertu aftur litla strá,
í lautum lífs og vonar
Allt sem þú óskar þér sjá,
er af sortum ýmiskonar.
Blóm sem eitt sinn voru fræ,
þau stækka óðum betur.
Við heitan andvarans unaðsblæ,
eftir kaldan harðan vetur.
Svo er um allt hér á jörðu,
sem aftur Í gróandann ná.
Þau berjast og basla í hörðu,
en breytast svo í falleg strá.
(The Crew)
This poem has not been translated into any other language yet.
I would like to translate this poem