myrkrið djúpa
umlykur stræti
í sofandi borg
regnvatnið tæra
droparnir drjúpa
dreifast um torg
þögnin nú syngur
þögnin sem hrærir
í gleði og sorg
myrkrið djúpa
umlykur stræti
í sofandi borg
This poem has not been translated into any other language yet.
I would like to translate this poem